Hoppa yfir valmynd
25. maí 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úthlutun úr Fornleifasjóði 2007

Fornleifasjóður var stofnaður skv. 24. grein þjóðminjalaga nr. 107/2001. Fjárveitingar til sjóðsins í ár voru 25 milljónir króna en honum bárust alls 57 umsóknir að upphæð rúmar 88 milljónir króna.

Fornleifasjóður var stofnaður skv. 24. grein þjóðminjalaga nr. 107/2001. Fjárveitingar til sjóðsins í ár voru 25 milljónir króna en honum bárust alls 57 umsóknir að upphæð rúmar 88 milljónir króna. Stjórn sjóðsins ákvað að úthluta aðeins einu sinni á þessu ári og hefur lokið úthlutun.

Eftirtaldir aðilar fengu styrki: upphæð kr.
Fornleifastofnun Íslands ses., Gavin Lucas. Víkingaaldarbyggðin á Hofstöðum 800.000
Fornleifastofnun Íslands ses., Orri Vésteinsson. Sveigakot í Mývatnssveit. Úrvinnsla og greining 2.400.000
Fornleifastofnun Íslands ses., Adolf Friðriksson. Járnöld í Dölum. Kumlaleit í Dalasýslu 1.500.000
Fornleifastofnun Íslands ses., Oscar Aldred og Birna Lárusdóttir. Mapping of archaeological landscapes 900.000
Fornleifastofnun Íslands ses., Howell Magnús Roberts. Öskuhaugur á Möðruvöllum í Hörgárdal 1.800.000
Háskólinn á Hólum – Hólaskóli, Ragnheiður Traustadóttir. Hólarannsóknin 2007–2011 7.000.000
Ferðamálafélag Vestur-Húnavatnssýslu, Gudrun H.H. Kloes. Merking hleðslna í Borgarvirki, 100.000
Byggðasafn Skagfirðinga, Guðný Zoëga. Kirkjur í Skagafirði. Rannsókn á kirkjustöðum frá 1000–1500 1.000.000
Skriðuklaustursrannsóknir, Steinunn Kristjánsdóttir. Uppgröftur á rústum Skriðuklausturs í Fljótsdal 2.400.000
Náttúrustofa Vestfjarða og Strandagaldur, Ragnar Edvardsson og Magnús Rafnsson. Hvalveiðar útlendinga við Ísland, 3.000.000
Fornleifafræðistofan, Bjarni F. Einarsson. Rannsókn á landsnámsminjum í Hólmi í Nesjum, A-Skaftafellssýslu 1.800.000
Fornleifafræðistofan, Kristján Mímisson. Fornleifarannsókn á rústum 17. aldar býlisins Búðarárbakka 1.800.000

                                                                                                                Samtals: kr. 24.500.000



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum