Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Friðun Hafnarstrætis 94, 96 og 98 á Akureyri

Menntamálaráðherra hefur að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar ákveðið að friða þrjú hús á Akureyri.

Menntamálaráðherra hefur að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar ákveðið að friða þrjú hús á Akureyri.

Húsin sem hér um ræðir eru Hafnarstræti 94, Hafnarstræti 96 og Hafnarstræti 98 og nær friðunin til ytra borðs húsanna. Samkvæmt húsafriðunarlögum getur ráðherra friðað samstæður húsa sem hafa menningarsögulegt eða listrænt gildi eins og gert er nú. Húsin eru öll talin hafa mikið gildi fyrir umhverfi sitt, ýmist sem hornhús eða áberandi kennileiti í miðbæ Akureyrar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum