Hoppa yfir valmynd
11. desember 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurlands

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Suðurlands rann út föstudaginn 7. desember sl.

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Suðurlands rann út föstudaginn 7. desember sl. Menntamálaráðuneyti bárust sex umsóknir um stöðuna. Umsækjendur eru:

Eyjólfur Bragason, áfangastjóri,
Guðbjörg Aðalbergsdóttir, skólameistari,
Jóhannes Ágústsson, framhaldsskólakennari,
Þór Pálsson, áfangastjóri,
Þórunn Jóna Hauksdóttir, sviðsstjóri og
Örlygur Karlsson, framhaldsskólakennari.

Miðað er við að menntamálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. febrúar nk, að fenginni tillögu hluteigandi skólanefndar, skv. 2. mgr. 11. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 80/1996 og sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum