Hoppa yfir valmynd
18. janúar 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Stefnumótun í menntunarmálum fanga

Nefnd sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra skipaði í maí 2006 til að vinna að stefnumótun í menntunarmálum fanga hefur lokið störfum og skilað skýrslu til ráðherra

Nefnd sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra skipaði í maí 2006 til að vinna að stefnumótun í menntunarmálum fanga hefur lokið störfum og skilað skýrslu til ráðherra. Nefndinni, sem sett var á laggirnar að tillögu Valtýs Sigurðssonar, fyrrverandi fangelsismálastjóra, var sérstaklega falið að huga að fjarkennslu gegnum Netið, verkmenntun, menntun fanga af erlendum uppruna og þeim hópi fanga sem af ýmsum ástæðum hafa fallið út úr skyldunámi. Skýrslu nefndarinnar fylgir jafnframt skýrsla um íslenska hluta samnorrænnar rannsóknar á menntun fanga sem fangar í afplánun á Íslandi tóku þátt í í október og nóvember 2006. Nefndin byggir tillögur sínar að miklu leyti á niðurstöðum sem fengust úr þeirri rannsókn. Heildarskýrsla um niðurstöður allra Norðurlandanna er væntanleg á þessu ári.
Eftirfarandi eru helstu niðurstöður nefndarinnar:

Nefndin lítur svo á að nám í fangelsi, ásamt öðrum meðferðarúrræðum sem í boði eru, gegni lykilhlutverki í endurhæfingu fanga og bendir á að margar rannsóknir sýni fram á að menntun í fangelsi hafi fyrirbyggjandi áhrif. Hún leggur því til að fangar verði hvattir til að nýta tímann í fangelsi til náms og þeim standi til boða kynning á námsmöguleikum, mat á fyrra námi, mat á raunfærni, áhugasviðsrannsókn, aðstoð við gerð námsáætlunar og við að skipuleggja frekara nám. Þýðingarmikið sé að bjóða upp á öfluga sérkennslu og einstaklingsmiðaða ráðgjöf. Góð aðstaða til að stunda nám þarf að vera til staðar í öllum fangelsum og tryggja þarf föngum aðgang að náms- og starfsráðgjöf, tölvum, bókasafni og nettengingu þar sem það á við. Nefndin leggur til að Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi gegni áfram lykilhlutverki í menntun fanga á Litla-Hrauni og að skólanum verði einnig falið það hlutverk að sjá til þess að föngum almennt standi til boða að stunda nám. Til að ná þessum markmiðum leggur nefndin til að náms- og starfsráðgjafi verði ráðinn að Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi hið fyrsta, sem veiti jafnframt náms- og starfsráðgjöf til fanga á öllu landinu.

Nefndin telur að erfitt sé að stunda nám í dag nema hafa aðgang að Netinu og leggur til að takmörkuð nettenging verði fyrir hendi í öllum fangelsum og rýmri heimildir í opnum fangelsum. Rýmka þurfi heimild til netnotkunar í lögum um fullnustu refsinga.

Bæta þarf aðstöðu til verknáms og starfsþjálfunar í fangelsum og skapa þarf störf sem geta nýst til starfsþjálfunar og þannig verið hluti af námi. Föngum sem kjósa að stunda verknám verði gefið tækifæri til starfsþjálfunar utan fangelsis að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þá beri að leita til atvinnufyrirtækja í nánasta umhverfi fangelsa um starfsnám fyrir þá fanga sem hafa leyfi til náms utan fangelsis.

Koma þarf til móts við þarfir fanga með stutta skólagöngu að baki m.a. með námskeiðum til að bæta grunnfærni í lestri, stærðfræði og tölvunotkun.

Hugað verði að íslenskukennslu fyrir erlenda fanga sem dvelja um langan tíma í íslenskum fangelsum og að möguleikum fanga af erlendum uppruna sem munu fara úr landi að lokinni afplánun á að stunda fjarnám við menntastofnanir í heimalöndum sínum.

Í nefndinni áttu sæti Ásgerður Ólafsdóttir, sérfræðingur, menntamálaráðuneyti, formaður, Dís Sigurgeirsdóttir, lögfræðingur, dóms- og kirkjumálaráðuneyti, Erlendur S. Baldursson, afbrotafræðingur, Fangelsismálastofnun ríkisins og Sigurður Sigursveinsson, skólameistari, Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi.

Menntamálaráðherra og dóms-og kirkjumálaráðherra kynntu skýrslu nefndarinnar á fundi ríkisstjórnar Íslands í morgun, 18. janúar. Strax verður hafist handa við að hrinda tillögum nefndarinnar í framkvæmd og fyrsta verkið verður að fela Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi að auglýsa stöðu náms- og starfsráðgjafa, sem eingöngu vinni að málefnum fanga.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum