Hoppa yfir valmynd
29. apríl 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ungt fólk 2007

Menntamálaráðuneyti boðar til kynningarfundar, fimmtudaginn 8, maí nk.

Menntamálaráðuneyti boðar til kynningarfundar, fimmtudaginn 8, maí nk.

Frummælendur eru:

  • Dr. Inga Dóra Sigfúsdóttir, deildarforseti Kennslufræða- og lýðheilsudeildar Háskólans í Reykjavík,
  • Álfgeir Logi Kristjánsson, aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík,
  • Margrét Lilja Guðmundsdóttir, aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík og
  • Jón Sigfússon, framkvæmdastjóri Rannsókna og greiningar.

Á fundinum verða kynntar helstu niðurstöður rannsóknarinnar „Ungt fólk 2007 framhaldsskólanemar“ er viðkemur líðan, menntun, menningu, tómstundum, íþróttaiðkun og framtíðarsýn íslenskra ungmenna. Rannsóknin var lögð fyrir nemendur í öllum framhaldsskólum landsins í október 2007.

Kynningarfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 8. maí 2008 kl. 13:15-16:00 í félagsheimili KFUM og KFUK við Holtaveg 28, Reykjavík.

Menntamálaráðuneyti hefur staðið fyrir reglubundnum rannsóknum á högum barna og ungmenna síðan 1992 undir heitinu Ungt fólk. Rannsóknir og greining hefur verið samstarfsaðili menntamálaráðuneytis frá árinu 1999 við þessar rannsóknir. Fundarmenn fá tækifæri til að bera fram spurningar um niðurstöður úr rannsókninni að kynningu lokinni.

Fundurinn er öllum opinn. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið: [email protected]



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum