Hoppa yfir valmynd
2. maí 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Innritun í framhaldsskóla 2008

Innritun í framhaldsskóla fer fram dagana 14. maí til og með 11. júní 2008.

Innritun í framhaldsskóla fer fram dagana 14. maí til og með 11. júní 2008. Þann 14. maí verður opnað fyrir rafræna innritun á skólavef menntamálaráðuneytis, menntagatt.is/innritun. Allar umsóknir um nám í dagskóla eru rafrænar. Sótt er um á netinu og berast umsóknirnar beint til upplýsingakerfa framhaldsskólanna.

Nemendur í 10. bekk grunnskóla fá afhent bréf í grunnskólunum með leiðbeiningum frá menntamálaráðuneyti ásamt veflykli sem veitir þeim persónulegan aðgang að innritun í framhaldsskóla. Forráðamenn nemenda 10. bekkjar fá einnig bréf frá ráðuneytinu með upplýsingum um innritunina. Til að sækja um skóla er hægt að nýta allar tölvur með netaðgangi, til dæmis í grunn- og framhaldsskólum. Umsækjendur sem luku grunnskólanámi árið 2007 eða fyrr þurfa að sækja sér veflykil á menntagatt.is/innritun. Nemendum sem koma erlendis frá er einnig bent á að setja sig í samband við þá skóla sem þeir hafa áhuga á að sækja um.

Við útfyllingu umsóknar er framhaldsskóli valinn ásamt skólum til vara, sem og námsbraut. Tiltaka skal ef nemandi þarf á sérstakri þjónustu að halda. Nemendur 10. bekkjar geta breytt eða afturkallað umsóknir allt þar til lokað verður fyrir skráningu á miðnætti miðvikudaginn 11. júní 2008. Frá og með 18. júní geta umsækjendur opnað umsóknir sínar aftur og fylgst með afgreiðslu þeirra. Aðrir umsækjendur um framhaldsskóla geta hins vegar sent inn sína umsókn þegar þeir kjósa á umræddu innritunartímabili. Geti skóli ekki orðið við umsókn verður hún send í skóla sem nemandi valdi til vara. Þegar allar umsóknir hafa verið afgreiddar fá nemendur bréf með upplýsingum um afgreiðsluna. Nemendur þurfa að staðfesta veitta skólavist með greiðslu innritunargjalds.

Innritun í nám í kvöldskóla, fjarnám og annað nám en í dagskóla verður með hefðbundnum hætti. Innritun fer fram í þeim framhaldsskólum sem hafa slíkt nám í boði. Skólarnir auglýsa umsóknarfrest sjálfir og leggja til umsóknareyðublöð. Umsækjendum er bent á að hafa samband við viðkomandi skóla hyggist þeir stunda nám í kvöldskóla eða fjarnámi. Upplýsingar um framhaldsskóla má finna á menntagatt.is/innritun.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum