Þróunarsjóður grunnskóla 2008
Úthlutað hefur verið úr Þróunarsjóði grunnskóla fyrir skólaárið 2008-2009. Menntamálaráðherra hefur ákveðið, að tillögu ráðgjafarnefndar, að veita styrki að upphæð alls 18,5 millj. kr. til 30 verkefna, en samtals voru umsóknir 63. Snælandsskóli fær hæsta styrkinn að þessu sinni 1,1 millj. kr. í verkefnið Að læra að læra. Lundarskóli á Akureyri fær 1 millj. kr. til verkefnisins Svífum seglum þöndum og Álftanesskóli fær 1 millj. kr. til verkefnisins Frá gráma til gleði- skólalóðin okkar.
Tilgangur sjóðsins er að efla nýjungar, tilraunir og nýbreytni í grunnskólum. Auglýst var eftir umsóknum um styrki á þremur forgangssviðum:
Heildarskipulag kennsluhátta og samfella milli skólastiga.
Skapandi hugsun, samstarf, jafnrétti og lýðræði í skólastofunni.
Umhverfisvitund og sjálfbær þróun.
Auk þess var auglýst eftir almennum þróunarverkefnum. Fimm manna ráðgjafarnefnd metur umsóknir og gerir tillögur til menntamálaráðherra um styrkveitingar. Í nefndinni eru fulltrúar frá Kennaraháskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, samtökum kennara og skólastjóra og menntamálaráðuneyti.
SRR, Símenntun, Rannsóknir, Ráðgjöf - Kennaraháskóla Íslands annast umsýslu Þróunarsjóðs grunnskóla skv. samningi við menntamálaráðuneyti. Vísað er á vef stofnunarinnar um frekari upplýsingar, srr.khi.is. Eftirtalin verkefni hafa fengið styrk úr Þróunarsjóði grunnskóla fyrir skólaárið 2007 - 2008.
Úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla 2008 |
||
A: Heildarskipulag kennsluhátta og samfella milli skólastiga |
||
Styrkþegi |
Verkefni |
Upphæð kr. |
Borgarbyggð |
Borgarfjarðarbrúin, samfella milli grunn- og framhaldsskóla |
700.000 |
Brekkubæjarskóli |
Sérkennslan í forgrunni |
500.000 |
Flataskóli |
Byrjendalæsi |
600.000 |
Hraunvallaskóli |
Samþætt starf leik- og grunnskóla - framhald |
400.000 |
Lágafellsskóli |
Nám er leikur- leikur er nám |
400.000 |
Lundarskóli |
Svífum seglum þöndum |
1.000.000 |
Salaskóli |
Samvinnubekkir og samstarf kennara |
900.000 |
Engidalsskóli |
Tölur og stærðir í leik- og starfi |
500.000 |
Súðavíkurskóli |
Göngum yfir brúna -samkennsla, samvinna leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla |
400.000 |
Varmárskóli |
Að starfa saman í leik og skóla er gaman |
500.000 |
Víðistaðaskóli |
Breytt og bætt námsmat |
900.000 |
|
|
6.800.000 |
B: Skapandi hugsun, samstarf, jafnrétti og lýðræði í skólastofunni. |
||
Bandalag íslenskra listamanna |
Litróf listanna |
400.000 |
Háteigsskóli |
Skapandi nám í gegnum leiklist (SNIGL) |
500.000 |
Skóladeild Akureyrarbæjar |
Hús fyrir alla |
800.000 |
Snælandsskóli |
Að læra að læra |
1.100.000 |
Ölduselsskóli |
Jafningjastuðningur í námi |
400.000 |
Ölduselsskóli |
Rafrænar verkmöppur í takt við tímann |
500.000 |
|
|
3.700.000 |
B: Umhverfisvitund, sjálfbær þróun |
||
Álftamýrarskóli |
Hjólafærni - Hjólum og verum klár í umferðinni |
600.000 |
Álftanesskóli |
Frá gráma til gleði - skólalóðin okkar |
1.000.000 |
Flataskóli |
Útikennsla í Flataskóla |
700.000 |
Grunnskóli Vestmannaeyja |
Náttúruvísindi á Heimaey |
500.000 |
Selásskóli |
Þekktu umhverfi þitt |
500.000 |
Síðuskóli |
Skóli fyrir framtíðina - grænt áfram |
400.000 |
Varmárskóli |
Bærinn okkar - betri bær |
900.000 |
|
|
4.600.000 |
C flokkur: Önnur forgangsverkefni |
||
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga |
Efling lesskilnings í skólum á Snæfellsnesi |
700.000 |
Grundaskóli |
Varst þú til í gamla daga? |
500.000 |
Grunnskólinn á Ísafirði |
Læsi til framtíðar |
500.000 |
Háteigsskóli |
Teymiskennsla og valsvæðavinna, útfærsla á skipulagi |
800.000 |
Varmárskóli og Elding, líkamsrækt |
Íþróttir fyrir alla |
500.000 |
Þorbjörg Þorsteinsdóttir |
Málamiðlun-Upplýsingabanki um erlend námsgögn |
400.000 |
|
|
3.400.000 |
|
Samtals úthlutað 2008 |
18.500.000 |