Hoppa yfir valmynd
15. maí 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Spor til framtíðar - menntun til sjálfbærni - málþing haldið 16. maí í Kennaraháskóla Íslands

Málþing um menntun til sjálfbærar þróunar í Kennaraháskóla Íslands.

Málþingið er haldið af umhverfisfræðsluráði, Kennaraháskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri. Málþingið er ókeypis og öllum opið.

Málþing um menntun til sjálfbærar þróunar í Kennaraháskóla Íslands.

Efnt verður til málþings um menntun til sjálfbærrar þróunar í Kennaraháskólanum í Reykjavík næstkomandi föstudag. Það eru umhverfisfræðsluráð og menntamálaráðuneytið sem boða til málþingsins í samvinnu við rannsóknarhóp Kennaraháskólans og Háskólans á Akureyri. Rannsóknarhópurinn vinnur nú að rannsóknar- og þróunarverkefninu GETA til sjálfbærni - menntun til aðgerða.

  • Inngangserindi málþingsins flytur Kennert Orlenius lektor frá Svíþjóð.
  • Í málstofum munu kennarar í leik-, grunn- og framhaldsskólum og fulltrúar sveitafélaga og frjálsra félagasamtaka kynna og ræða um verkefni og aðgerðir sem stuðlað gætu að menntunar til sjálfbærrar þróunar. Í kjölfarið verða pallborðsumræður um hvernig sjálfbær þróun getur orðið viðmið í íslensku skólastarfi.
  • Að endingu verður boðið upp á léttar veitingar.

Málþingið er opið öllum og aðgangur er ókeypis. Skráning fer fram á [email protected]

Dagskrá: Hefst í Skriðu, fyrirlestrarsal KHÍ
12:30–12:45 Opnun – Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri skrifstofu menntamála. Menntamálaráðuneyti
12:45–13:00 Geta til sjálfbærni – menntun til aðgerða, Stefán Bergmann dósent við Kennaraháskóla Íslands
13:00–13.45 Education for Sustainable development. Values in education and education in values, Kennert Orlenius lektor við Högskolan Skövde í Svíþjóð.
13:45–14:00 Neytendavitund og menntun til sjálfbærrar þróunar: Evrópusamstarf um fræðslu og námsefnisgerð. Sjöfn Guðmundsdóttir Menntaskólanum við Sund.
14:15–15:15 Málstofur: Hvernig má útfæra menntun til sjálfbærrar þróunar?
15:30–16:30 Pallborðsumræður. Samantekt - hvernig getur sjálfbær þróun orðið viðmið í skólastarfi, undir stjórn Ingólfs Jóhannessonar prófessors við Háskólann á Akureyri.
16:30– Léttar veitingar og spjall.




Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum