Hoppa yfir valmynd
13. júní 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Rafræn innritun í framhaldsskóla 2008

Umsóknarfrestur um nám í dagskóla á haustönn 2008 rann út á miðnætti, miðvikudaginn 11. júní.

Umsóknarfrestur um nám í dagskóla á haustönn 2008 rann út á miðnætti, miðvikudaginn 11. júní. Um 4400 af 4600 nemendum 10. bekkjar grunnskóla höfðu þá sótt um skólavist á haustönn 2008. Flestar umsóknir nýnema bárust Verzlunarskóla Íslands og Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þessir skólar þurfa að vísa frá rúmlega 400 umsækjendum sem höfðu valið þá sem fyrsta kost. Þeir eiga þó vísa vist í öðrum framhaldsskólum. Þá sóttu um 3400 eldri nemendur, sem annað hvort óska eftir að skipta um skóla eða hefja nám að nýju, um skólavist í dagskóla.

Afgreiðsla umsókna
Frá og með 17. júní geta umsækjendur opnað umsóknir sínar aftur og fylgst með afgreiðslu þeirra. Þá ætti afgreiðslu umsókna um aðalskóla og varaskóla 1 að vera því sem næst lokið. Afgreiðslu allra umsókna á að vera lokið fyrir miðnætti fimmtudaginn 19. júní. Fái umsækjandi úr 10. bekk ekki inni í þeim skóla sem hann valdi berst umsókn hans til ráðuneytisins sem þá leitar úrræða fyrir viðkomandi. Landið er eitt innritunarsvæði en að öðru jöfnu er litið svo á að framhaldsskólar hafi skyldur við nemendur sem eiga lögheimili í nágrenni þeirra. Skólar senda svarbréf til umsækjenda sem fengið hafa skólavist, en nemendur þurfa að staðfesta veitta skólavist með greiðslu innritunargjalds.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum