Hoppa yfir valmynd
29. maí 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Innritun í framhaldsskóla á haustönn 2009

Innritun í framhaldsskóla lýkur á miðnætti fimmtudaginn 11. júní 2009. Sótt er um á vefnum menntagatt.is/innritun og berast umsóknirnar beint til upplýsingakerfa framhaldsskólanna.

Innritun í framhaldsskóla lýkur á miðnætti fimmtudaginn 11. júní 2009. Sótt er um á vefnum menntagatt.is/innritun og berast umsóknirnar beint til upplýsingakerfa framhaldsskólanna.

Nemendur í 10. bekk grunnskóla hafa fengið afhent bréf í grunnskólunum með leiðbeiningum frá menntamálaráðuneyti ásamt veflykli sem veitir þeim persónulegan aðgang að innritun í framhaldsskóla. Forráðamenn nemenda 10. bekkjar eiga einnig að hafa fengið bréf frá ráðuneytinu með upplýsingum um innritunina.

Til að sækja um skóla er hægt að nýta allar tölvur með netaðgangi, til dæmis í grunn- og framhaldsskólum. Umsækjendur sem luku grunnskólanámi árið 2008 eða fyrr þurfa að sækja sér veflykil á menntagatt.is/innritun. Nemendum sem koma erlendis frá er einnig bent á að setja sig í samband við þá skóla sem þeir hafa áhuga á að sækja um. Upplýsingar um námsframboð framhaldsskólanna og tengiliði innritunar og námsbrauta er að finna á vefslóðinni http://framhaldsskolar.menntagatt.is.

Við útfyllingu umsóknar er framhaldsskóli valinn ásamt skólum til vara, sem og námsbraut. Tiltaka skal ef nemandi þarf á sérstakri þjónustu að halda. Nemendur 10. bekkjar geta breytt eða afturkallað umsóknir allt þar til lokað verður fyrir skráningu á miðnætti fimmtudaginn 11. júní 2009. Frá og með 15. júní geta umsækjendur opnað umsóknir sínar aftur og fylgst með afgreiðslu þeirra.

Aðrir umsækjendur um framhaldsskóla geta hins vegar sent inn sína umsókn þegar þeir kjósa á umræddu innritunartímabili. Geti skóli ekki orðið við umsókn verður hún send í skóla sem nemandi valdi til vara. Framhaldsskólarnir ætla að vera búnir að afgreiða umsóknir um 1. val í síðasta lagi 15. júní, 2. val 19. júní, 3. val 21. júní og 4. val 23. júní. Þegar allar umsóknir hafa verið afgreiddar fá nemendur bréf með upplýsingum um afgreiðsluna. Nemendur þurfa að staðfesta veitta skólavist með greiðslu innritunargjalds.

Innritun í nám í kvöldskóla, fjarnám og annað nám en í dagskóla verður með hefðbundnum hætti. Innritun fer fram í þeim framhaldsskólum sem hafa slíkt nám í boði. Skólarnir auglýsa umsóknarfrest sjálfir og leggja til umsóknareyðublöð.

Umsækjendum er bent á að hafa samband við viðkomandi skóla hyggist þeir stunda nám í kvöldskóla eða fjarnámi.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum