Hoppa yfir valmynd
28. ágúst 2009 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Stjórn Rannsóknasjóðs 2009-2012

Menntamálaráðherra hefur skipað stjórn Rannsóknasjóðs, sbr. 4. gr. laga nr. 3/2003 um opinberan stuðning við vísindarannsóknir.

Menntamálaráðherra hefur skipað stjórn Rannsóknasjóðs, sbr. 4. gr. laga nr. 3/2003 um opinberan stuðning við vísindarannsóknir. Skipunartími er sami og Vísinda- og tækniráðs 2009-2012.

Stjórn Rannsóknasjóðs 2009-2012 skipa:

  • Dr. Guðrún Nordal, prófessor, Stofnun Árna Magnússonar, formaður
    Varamaður: Dr. Unnur Dís Skaptadóttir, prófessor Háskóla Íslands
  • Dr. Hannes Jónsson, prófessor Háskóla Íslands
      Varamaður: Dr. Magnús Már Halldórsson, prófessor Háskólanum í Reykjavík
  • Dr. Áslaug Helgadóttir, prófessor, Landbúnaðarháskóla Íslands
      Varamaður: Dr. Áslaug Geirsdóttir, prófessor Háskóla Íslands
  • Dr. Þórunn Rafnar, Íslenskri Erfðagreiningu
      Varamaður: Dr. Einar Mantyla, Orf líftækni
  • Dr. Vilmundur Guðnason, prófessor, Hjartavernd
      Varamaður: Dr. Þorvaldur Ingvarsson, prófessor, Háskólanum á Akureyri
     
    Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir á Íslandi.  Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn skilgreind rannsóknaverkefni einstaklinga, rannsóknahópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja. Rannsóknasjóður veitir styrki samkvæmt almennum áherslum Vísinda- og tækniráðs og á grundvelli faglegs mats á gæðum rannsóknaverkefna, færni þeirra einstaklinga sem stunda rannsóknirnar og aðstöðu þeirra til að sinna verkefninu. Stjórn Rannsóknasjóðs fer jafnframt með stjórn Tækjasjóðs.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum