Hoppa yfir valmynd
22. desember 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úthlutun úr Sprotasjóði 2009

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði fyrir skólaárið 2009-2010.

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði fyrir skólaárið 2009-2010. Sprotasjóður var stofnaður samkvæmt 15. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla, 34. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla og 53. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla. Sjóðurinn hefur það hlutverk að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að tillögu stjórnar, að veita styrki til 44 verkefna að upphæð tæplega 44. millj. kr., en samtals voru umsóknir 143.

Áherslusvið sjóðsins voru að þessu sinni:

  • Sveigjanleiki og fjölbreytni í námi og kennsluháttum
  • Lestrarkennsla og læsi í víðum skilningi.

Fimm manna stjórn metur umsóknir og gerir tillögur til mennta- og menningarmálaráðherra um styrkveitingar. Í nefndinni eru fulltrúar frá Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samstarfsnefnd háskólastigsins og mennta- og menningarmálaráðuneyti.


Styrkþegi Nafn verkefnis Úthlutun í kr.
Framhaldsskólastig
Fjölbrautaskólinn Garðabæ Hönnunar og markaðsbraut við Fjölbrautaskólann í Garðabæ 1.700.000
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra Gagnvirkar töflur í kennslu 600.000
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti Mentorar/aðstoða nemendur af sama uppruna 800.000
Flensborgarskólinn, Hafnarfirði Nýir kennsluáfangar í Flensborg 500.000
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ Einstaklingsmiðað nám í umhverfisfr. og dönsku 1.500.000
Menntaskólinn í Kópavogi Þverfaglegt viðfangsefni 2.500.000
Menntaskólinn við Hamrahlíð Lýðræði, stjórnmál og sjálfbærni í framhaldsskóla 1.000.000
Menntaskólinn við Sund Breytingastofa og starfsendarannsókn 2.300.000
Verzlunarskóli Íslands Þróað læsi (upplýsinga- og menningarlæsi) 1.000.000
Grunnskólastig
Háskólinn á Akureyri Fágæti og furðuverk 450.000
Austurbæjarskóli Efling læsis í Austurbæjarskóla 500.000
Álftanesskóli Lestur og ritun. Markviss efling læsis, lesskilnings og færni nemenda í ritun 550.000
Breiðagerðisskóli Byrjendalæsi 400.000
Breiðagerðisskóli Læsi til framtíðar- Orð af orði 600.000
Grunnskólinn Ljósaborg Til móts við náttúruna 700.000
Grundaskóli Þróunarverkefni í byrjendalæsi 1.000.000
Grunnskóli Seltjarnarness Sex ný lönd á Fjölmenningarvef barna 600.000
Grunnskóli Snæfellsbæjar Átthagafræði í skólum Snæfellsbæjar 700.000
Grunnskóli Vestmannaeyja Grunnskóli Vestmannaeyja- náttúruskóli 1.200.000
Háteigsskóli Að auka orðaforða nemenda með aðferðum leiklistar 700.000
Hjallaskóli Lestrarkennsla og læsi 700.000
Hraunvallaskóli Byrjendalæsi 900.000
Hvaleyrarskóli Björgin 800.000
Korpuskóli L-9 þróunarverkefni. Lestur í Grafarvogi 880.000
Langholtsskóli Útikennsla og námsmat 800.000
Laugalækjarskóli Verkferlar í læsi og ritun í Laugalækjarskóla 600.000
Lindaskóli Lestrarkennsla og læsi/Lestrarátak í 2-7. bekk 600.000
Melaskóli Lestrarkennsla og læsi í víðum skilningi með fjölbreyttum kennsluháttum 900.000
Myndlistaskólinn í Reykjavík Dindilyndi - verði gjafa gagnstreymi 800.000
Seljaskóli Í upphafi skyldi endinn skoða - samræmt námsmat og snemmtæk íhlutun í lestri í 1.- 4. bekk 700.000
Seyðisfjarðarskóli/Skaftafell, miðstöð myndlistar Fræðsluverkefni Skaftafells 2009-2010 "hugmyndavinna" 500.000
Sjálandsskóli Þemakennsla á unglingastigi 400.000
Víðistaðaskóli Breytt og bætt námsmat 600.000
Ölduselsskóli Upplýsinga- og þjónustuvefur um náms- og starfsráðgjöf á grunnskólastigi 600.000
Leikskólastig
Leikskólinn Krílakot Tónar eiga töframál 1.000.000
Leikskólinn Kiðagil Leikskólalæsi 1.000.000
Leikskólinn Tjarnarland Á vegamótum 500.000
Leikskólinn Vesturborg Ég og Vesturbærinn minn í námi og leik 700.000
Skólaskrifstofa Garðabæjar Lesmál- Sögu og samverustundir í leikskólum Garðabæjar 800.000
Þvert á skólastig
Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar PALS - læsi í leik- og grunnskólum í Mosfellsbæ 3.000.000
Brekkubæjarskóli 6+1 Trait- kennsla við ritun 400.000
Egilsstaðaskóli Umhverfislæsi og staðarstolt - nýsköpunarmennt sem tæki til skilnings og athafna 2.250.000
Laugalækjarskóli Tungumálatorg 2.500.000
Menntaskóli Borgarfjarðar Borgarfjarðarbrúin 2.200.000
43.430.000

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum