Hoppa yfir valmynd
25. janúar 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Dagur leikskólans 6. febrúar 2010

Þann 6. febrúar n.k. er dagur leikskólans, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan. Daginn ber að þessu sinni upp á laugardag og því er mælst til þess að honum verði fagnað í leikskólum föstudaginn 5. febrúar.

Dagur leikskólans 6. febrúar
dagur_leikskolans-1

Þann 6. febrúar n.k. er dagur leikskólans, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan. Daginn ber að þessu sinni upp á laugardag og því er mælst til þess að honum verði fagnað í leikskólum föstudaginn 5. febrúar. Leikskólakennarar munu þennan sama dag fagna 60 ára afmæli félagsins m.a. með útgáfu veglegs afmælisrits.

Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta-og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfið út á við.

Leikskólakennarar og annað starfsfólk leikskólanna, hafa á undanförnum árum, ásamt nemendum sínum gert daginn eftirminnilegan á margan hátt. Í fyrra var, svo dæmi séu tekin farið í „meðmælagöngur", foreldrum og velunnurum boðið í morgunmat og kaffi, vasaljós notuð til að varpa ljósi á barnið, haldnar myndlistar-og leiksýningar og mikið sungið eins og venja er í leikskólum. Leikskólakennarar eru sammála um að dagurinn sé í alla staði skemmtileg tilbreyting og ákjósanleg leið til halda á lofti góðu starfi leikskólanna.

Við minnum á að á vef ráðuneytisins hægt er að nálgast bæklinginn sem gefinn var út fyrsta árið sem dagurinn var haldinn.

Við bjóðum góðan dag, alla daga

  • Hrafnhildur Karlsdóttir
    Formaður kynningarnefndar Félags leikskólakennara
  • Sigríður Lára Ásbergsdóttir
    Deildarstjóri í mennta-og menningarmálaráðuneyti
  • Svandís Ingimundardóttir
    Skólamálafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Sjöfn Þórðardóttir
    Formaður Heimilis og skóla


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum