Hoppa yfir valmynd
28. janúar 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Breytingar í mennta- og menningarmálaráðuneyti

Þann 1. febrúar verða þær breytingar í mennta- og menningarmálaráðuneyti að Sigtryggur Magnason lætur af störfum sem aðstoðarmaður ráðherra.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið
Menntamalaraduneytid

Þann 1. febrúar verða þær breytingar í mennta- og menningarmálaráðuneyti að Sigtryggur Magnason lætur af störfum sem aðstoðarmaður ráðherra. Við starfinu tekur Elías Jón Guðjónsson sem hefur að undanförnu gegnt stöðu upplýsingafulltrúa í fjármálaráðuneytinu.
Elías Jón hefur starfað sem fjölmiðlafulltrúi fjármálaráðuneytisins frá júlí á síðasta ári en þar á undan sem blaðamaður. Hann var formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands og lærði stjórnmálafræði.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum