Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Staða skólameistara við Fjölbrautaskólann í Garðabæ

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskólann í Garðabæ rann út mánudaginn 15. febrúar sl.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskólann í Garðabæ rann út mánudaginn 15. febrúar sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust tíu umsóknir um stöðuna, frá tveim konum og 8 körlum. Umsækjendur eru:

  • Alda Baldursdóttir, sviðsstjóri,
  • Aðalheiður Dröfn Eggertsdóttir, framhaldsskólakennari,
  • Ársæll Guðmundsson, skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar,
  • Hafsteinn Karlsson, skólastjóri Salaskóla í Kópavogi,
  • Jóhannes Ágústsson, framhaldsskólakennari,
  • Kristinn Þorsteinsson, aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Garðabæjar,
  • Kristján Bjarni Halldórsson, framhaldsskólakennari,
  • Magnús Ingólfsson, framhaldsskólakennari,
  • Magnús Ingvason, kennslustjóri,
  • Þór Steinsson Steinarsson, framhaldsskólakennari.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. ágúst nk., að fenginni umsögn hluteigandi skólanefndar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum