Hoppa yfir valmynd
25. febrúar 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

88,5 milljónum úthlutað til innlendrar dagskrárgerðar

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að eftirstöðvum Menningarsjóðs útvarpsstöðva, samtals 88,5 milljónir króna, verði úthlutað til innlendrar dagskrárgerðar fyrir hljóðvarp og sjónvarp í samræmi við úthlutnarreglur sjóðsins.

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að eftirstöðvum Menningarsjóðs útvarpsstöðva, samtals 88,5 milljónir króna, verði úthlutað til innlendrar dagskrárgerðar fyrir hljóðvarp og sjónvarp í samræmi við úthlutnarreglur sjóðsins. Það verður gert með tveimur úthlutunum á árinu 2010 annars vegar og árinu 2011 hins vegar. Mennta- og menningarmálaráðherra mun skipa sjóðnum nýja stjórn á næstunni sem fær það hlutverk að undirbúa úthlutanirnar.
Hefðbundinni starfsemi Menningarsjóðs útvarpsstöðva lauk um aldamótin en síðan hefur inneign hans á bankareikningi ávaxtast vel og er hún nú 88,5 milljónir króna. Hlutverk sjóðsins er að veita styrki til eflingar á innlendri dagskrárgerð í hljóðvarpi og sjónvarpi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum