Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samstarf við aðila vinnumarkaðarins um framhaldsfræðslu

Samstarfsyfirlýsing um að hækka menntunarstig íslensku þjóðarinnar til aukinnar virkni í atvinnulífi og samfélaginu í heild var undirrituð 24. nóvember.

Samstarfsnefnd um símenntun/starfsþróun kennara
Samstarfsnefnd um símenntun/starfsþróun kennara
  • Unnið að auknum tækifærum til mennta.
  • Stefnt að hærra menntastigi í íslensku samfélagi.
  • Samstarf við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins til ársins 2015.

Samstarfsyfirlýsing um að hækka menntunarstig íslensku þjóðarinnar til aukinnar virkni í atvinnulífi og samfélaginu í heild var undirrituð í dag. Að henni standa mennta- og menningarmálaráðuneyti, Alþýðusamband Íslands (ASÍ), Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB), Samtök atvinnulífsins (SA), fjármálaráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga. Við sama tækifæri var skrifað undir nýjan þjónustusamning á milli mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Áætlað er að um 30% Íslendinga á aldrinum 25 til 64 ára hafi ekki lokið formlegu námi umfram skyldunám. Á þessu sviði er menntunarstig hér á landi með því lægsta sem þekkist í Evrópu. Samstarfsyfirlýsingin felur í sér að unnið verður markvisst að því að hlutfall fólks á vinnumarkaði án viðurkenndrar starfs- eða framhaldsskólamenntunar verði ekki hærra en 10% árið 2020. Til að ná því markmiði verður framhaldsfræðsla efld. Jafnframt verði tryggt að menntun og færni sem er metin innan framhaldsfræðslunnar verði viðurkennd innan framhaldsskólans og þeir sem þess óska geti  bætt við menntun sína án hindrana.
Meginmarkmiðið er að veita fólki á vinnumarkaði með litla grunnmenntun, fólki sem horfið hefur frá námi án þess að ljúka námi á framhaldsskólastigi, innflytjendum og öðrum sambærilegum hópum tækifæri til að afla sér menntunar, bæta stöðu sína á vinnumarkaði og í samfélaginu sem heild. Þá þarf framhaldsfræðslan að greiða leið þeirra sem þurfa vegna breyttra aðstæðna á vinnumarkaði á  nýrri þekkingu og færni að halda.
Með öflugri framhaldsfræðslu er ætlunin að efla lýðræðislega þátttöku í samfélaginu og stuðla að jákvæðri byggðaþróun í landinu, stuðla að jafnrétti, auka félagslega aðlögun jaðarhópa m.a. fatlaðra og innflytjenda að atvinnulífi og samfélaginu, auka læsi fullorðinna, efla íslenskukennslu fyrir fullorðna innflytjendur og auka starfstengda íslenskukennslu fyrir þá.
Á grundvelli yfirlýsingarinnar hefur mennta- og menningarmálaráðuneytið gert þjónustusamning við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins um verkefni í framhaldsfræðslu til ársins 2015. Með samningnum er Fræðslumiðstöð atvinnulífsins falin umsjón með ýmsum verkefnum er varða framkvæmd laga um framhaldsfræðslu.

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra um samstarfið:

„Mikilvægt er að sköpuð verði námstækifæri sem efla sérstaklega fólk með stutta skólagöngu að baki sem gagnrýna og virka samfélagsþegna sem hafi skilning á samfélagi, umhverfi og náttúru.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum