Hoppa yfir valmynd
15. febrúar 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til atvinnuleikhópa 2011

Alls sóttu 67 aðilar um styrki til 85 verkefna auk sex umsókna um samstarfssamninga.

  • Sviðslistahópurinn 16 elskendur / Ylfa Ösp Áskelsdóttir o.fl. 8.000 þús. kr. til uppsetningar á verkinu Sýning ársins
  • Common Nonsense / Valur Freyr Einarsson o.fl. 4.000 þús. kr. Vegna uppsetningar á verkinu Tengdó
  • Fígúra / Hildur M. Jónsdóttir o.fl. 3.950 þús. kr. vegna uppsetningar á verkinu Gamli maðurinn og hafið
  • Aldrei óstelandi / Edda Björg Eyjólfsdóttir o.fl. 3.600 þús. kr. vegna uppsetningar á verkinu Fólk í myrkri - morðsaga
  • Netleikhúsið Herbergi 408 / Steinunn Knútsdóttir o.fl. 5.500 þús. kr. vegna uppsetningar á verkinu Jöklar – sex leiksýningar í einni
  • Íslenska hreyfiþróunarsamsteypan / Katrín Gunnarsdóttir o.fl. 4.850 þús. kr. vegna uppsetningar á leikverkinu Slap!
  • Ég og vinir mínir / Álfrún H. Örnólfsdóttir o.fl. 3.600 þús. kr. vegna uppsetningar á leikverkinu Kamelljón
  • Kvenfélagið Garpur / Sólveig Guðmundsdóttir o.fl. 4.650 þús. kr. vegna uppsetningar á leikverkinu Beðið eftir Godot
  • Framandverkaflokkurinn Kviss búmm bang / Eva Rún Snorradóttir o.fl. 600 þús. kr. vegna uppsetningar á leikverkinu Hótel Keflavík
  • Naív/Himneska / Sigtryggur Magnason o.fl. 4.800 þús. vegna uppsetningar á leikverkinu Nú er himneska sumarið komið
  • Söguleikhúsið / Sigríður Margrét Guðmundsdóttir o.fl. 3.150 þús. kr. vegna uppsetningar á leikverkinu Töfraheimur heiðninnar
  • The Island Project / Friðgeir Einarsson o.fl. 3.500 þús. kr. vegna uppsetningar á leikverkinu The Island Project
  • Tinna Grétarsdóttir 900 þús. kr. til uppsetningar á leikverkinu Út í veður og vind
  • Málamyndahópurinn / Þórdís Elva Þorvaldsdóttir o.fl. 1 millj. kr. þróunarstyrkur vegna leikverksins Fyrirgefningin
  • Pálína frá Grund / Pálína Jónsdóttir o.fl. 1 millj. kr. þróunarstyrkur vegna leikverksins Gestaboð Babettu

Alls sóttu 67 aðilar um styrki til 85 verkefna auk sex umsókna um samstarfssamninga. Á fjárlögum 2011 eru alls 58,4 millj. kr. til starfsemi atvinnuleikhópa. Af þeirri upphæð renna 4 millj. kr. til skrifstofu Sjálfstæðu leikhúsanna skv. ákvörðun Alþingis. Samtals er úthlutað til einstakra verkefna 53,1 millj.kr.

Í leiklistarráði eru Guðrún Vilmundardóttir, formaður, skipuð án tilnefningar, Jórunn Sigurðardóttir, tilnefnd af Leiklistarsambandi Íslands og Hera Ólafsdóttir, tilnefnd af Bandalagi sjálfstæðra leikhúsa.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum