Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Vesturlands rann út mánudaginn 25. febrúar sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust sjö umsóknir um stöðuna, frá þremum konum og fjórum körlum.

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Vesturlands rann út mánudaginn 25. febrúar sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust sjö umsóknir um stöðuna, frá þrem konum og fjórum körlum. Umsækjendur eru:

  • Atli Harðarson, aðstoðarskólameistari,
  • Geir Hólmarsson, framhaldsskólakennari,
  • Ingi Bogi Bogason, sjálfstætt starfandi ráðgjafi,
  • Ingileif Oddsdóttir, framhaldsskólakennari og náms- og starfsráðgjafi,
  • Jóhannes Ágústsson, fyrrverandi skólastjóri,
  • Lind Völundardóttir, framhaldsskólakennari og
  • Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. ágúst nk., að fenginni umsögn hluteigandi skólanefndar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum