Hoppa yfir valmynd
8. júní 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Íslenski skálinn á Feneyjatvíæringnum opnaður

Íslenski skálinn á 54. Feneyjatvíæringnum var formlega opnaður 3. júní sl. í Palazzo Zenobio.

feneyjar02
feneyjar02

Íslenski skálinn á 54. Feneyjatvíæringnum var formlega opnaður 3. júní sl. í Palazzo Zenobio að viðstöddum á þriðja þúsund gesta. Spænsk - íslenska listatvíeykið Libia Castro og Ólafur Ólafsson eru fulltrúar Íslands á tvíæringnum að þessu sinni sem nú ber yfirskriftina „ILLUMInations“.

Sýning Libiu og Ólafs „Under deconstruction“ samanstendur af röð verka sem unnin eru í ólíka miðla á borð við myndbönd, gjörninga, hljóðskúlptúra og málverk þar sem tekið er með gagnrýnum hætti á aðkallandi málum innan alþjóðasamfélagsins og íslensk samfélags. Verk Libiu og Ólafs hefur þegar á fyrstu dögunum vakið umtalsverða athygli alþjóðlegra tímarita og fjölmiðla á borð við Frieze og Monopol, ARD, Süddeutsche Zeitung og Tagesspiegel svo dæmi séu nefnd.

Fyrsta verkið „Landið þitt er ekki til“ birtist í ólíkum miðlum; gjörningi sem framinn var við opnunina þar sem Ásgerður Júníusdóttir, messósópransöngkona, sigldi um síkin í Feneyjum í gondóla og söng „Þetta er tilkynning frá Libiu og Ólafi: Landið þitt er ekki til“ á ýmsum tungumálum við trompetundirleik David Boato og gítarleik Alberto Mesirca. Textinn var saminn af Ólafi og Libíu en tónlistina samdi Karólína Eiríksdóttir, tónskáld. Önnur útgáfa verksins er videótónverk af gondólagjörningnum sem sýnt er í íslenska skálanum. Þriðja útgáfan er „Gerðu það sjálfur“ málverk og ljósmynd þar sem sendiherra Íslands í Berlín málar eftir númerum Your country doesn't exist en sleppir „n't“ þannig að úr verður Your country does exist. Fjórða útgáfa er neonskúlptúr Il tuo paese non esiste sem er ítölsk útgáfa verksins sem hangir á framhlið skálans.

Annað verkið er videótónverkið „Stjórnarskrá Íslands“ eða Constitution of the Republic of Iceland í upptöku Ríkisútvarpsins sl. vor fyrir listasafnið Hafnarborg. Listatvíeykið fékk Karólínu Eiríksdóttur, tónskáld, til að semja fyrir sópran- og baritónrödd, píanó, kontrabassa og blandaðan kammerkór og var það frumflutt á Íslandi í mars 2008.

Fjórði hluti verksins „Exorcising Ancient Ghosts“ er hljóðskúlptúr á tveimur tungumálum sem byggir á rannsókn Libiu og Ólafs á réttindum kvenna og útlendinga í Grikklandi til forna þar sem borgurum var m.a. meinað að eiga náið samneyti við útlendinga. Libia og Ólafur störfuðu með rannsóknarteymi til að skapa áhrifamikla textaklippimynd sem er samsett úr hinum ýmsu textabrotum úr forngrískum stjórnmála-, heimspeki-, lögfræði- og bókmenntatextum.

Þátttaka Íslands í Feneyjum er skipulögð af Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar. Mennta- og menningarmálaráðuneytið er helsti stuðningsaðili verkefnisins en fjöldi annarra stuðningsaðila kemur einnig að því. Sýningin er opin fram til loka nóvember. Nánari upplýsingar er að finna á vef kynningarmiðstöðvarinnar  og Feneyjartvíæringsins

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum