Hoppa yfir valmynd
7. nóvember 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Innritun í framhaldsskóla á vorönn 2012

Innritun í dagskóla lýkur 22. nóvember 2011 á skólavef menntamálaráðuneytis, menntagatt.is. Allar umsóknir um nám í dagskóla eru rafrænar.

Innritun í dagskóla lýkur 22. nóvember 2011 á skólavef menntamálaráðuneytis, menntagatt.is. Allar umsóknir um nám í dagskóla eru rafrænar. Sótt er um á netinu og berast umsóknirnar beint til upplýsingakerfa framhaldsskólanna. Einstakir skólar kunna að bjóða upp á lengra innritunartímabil og eru upplýsingar um það að finna á vefsíðum viðkomandi skóla.

Umsækjendur þurfa að hafa tiltækan veflykil sem hægt er að sækja um á menntagatt.is. Nemendum sem koma erlendis frá er einnig bent á að setja sig í samband við þá skóla sem þeir hafa áhuga á að sækja um.

Við útfyllingu umsóknar er framhaldsskóli valinn ásamt skólum til vara, sem og námsbraut og önnur þjónusta sem er í boði í einstökum skólum.

Innritun í nám í kvöldskóla, fjarnám og annað nám en í dagskóla fer fram í þeim framhaldsskólum sem hafa slíkt nám í boði. Skólarnir auglýsa umsóknarfrest sjálfir og leggja til umsóknareyðublöð. Umsækjendum er bent á að hafa samband við viðkomandi skóla hyggist þeir stunda nám í kvöldskóla eða fjarnámi. Upplýsingar um framhaldsskóla má finna á menntagatt.is.

Nánari upplýsingar um innritun er hægt að fá hjá framhaldsskólunum eða með því að senda fyrirspurn á netfangið: [email protected]

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum