Hoppa yfir valmynd
22. febrúar 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Framlag til kynningarmiðstöðva listgreina aukið

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur undirritað samninga um rekstrarframlag við kynningarmiðstöðvar listgreina og hönnunar.Helstu atriði:
  • Samningar gerðir til þriggja ára um rekstur kynningarmiðstöðva listgreina.
  • Heildarframlög hækka um 27,5 m.kr.  (63,5%).

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur undirritað samninga um rekstrarframlag við kynningarmiðstöðvar listgreina og hönnunar. Samningarnir eru til þriggja ára, 2012-2014, og fela í sér 63,2 % hækkun á framlagi til miðstöðvanna, úr 43,5 m.kr. árið 2011 í 71 m.kr. árið 2012. Þetta undirstrikar áherslu ráðuneytisins á að þessar listgreinar nái að eflast og dafna og að unnið sé markvist og ötullega að kynningu þeirra hér á landi og erlendis.

Um er að ræða samninga við Handverk og hönnun,  Hönnunarmiðstöð Íslands, Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar (KÍM) og Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN).  Samningurinn við Hönnunarmiðstöð er gerður í samstarfi við iðnaðarráðuneyti og samningurinn við ÚTÓN í samstarfi við iðnaðarráðuneyti og utanríkisráðuneyti. Samningarnar verða birtir á heimasíðu ráðuneytisins.

Af öðrum framlögum á yfirstandandi ári til að efla alþjóðlegt samstarf og kynningar á sviði lista má nefna að 25 m. kr. hefur verið veitt til að fylgja eftir árangrinum af bókasýningunni í Frankfurt og 5 m.kr. til Leiklistarsambands Íslands vegna þátttöku í erlendum verkefnum.  Framlög til Bókmenntasjóðs eru 42 m.kr. og til viðbótar  komu  23 m.kr.  vegna eftirstöðva úr Menningarsjóði og Þýðingarsjóði þegar þeir voru lagðir niður og gerðir upp.

      Aukning
  2011 2012 m.kr. %
Handverk og hönnun 10 12 2 20,0%
Hönnunarmiðstöð 8,5 15 6,5 76,5%
Kynningarmiðstöð íslenkskrar myndlistar (KÍM) 13 23 10 76,9%
Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) 12 21 9 75,0%
Samtals m.kr. 43,5 71 27,5 63,2%


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum