Hoppa yfir valmynd
31. ágúst 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir vegna stuðnings við dönskukennslu

Styrkir vegna stuðnings við dönskukennslu.

Samkvæmt samningi milli menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur um stuðning við dönskukennslu á Íslandi leggur menntamálaráðuneyti árlega fram fjármagn til verkefna á eftirfarandi sviðum, sbr. 4. gr. samningsins:

1. Endurmenntunarnámskeiða fyrir dönskukennara í grunn- og framhaldsskólum
2. Námsefnisgerðar í dönsku fyrir grunn- og framhaldsskóla
3. Rannsókna og þróunar á sviði náms og kennslu í dönsku sem erlends tungumáls
4. Vitundarvakningar um mikilvægi dönskukunnáttu.

Hér með er auglýst að nýju eftir umsóknum um styrki til verkefna á þessum sviðum, sbr. einnig auglýsingu ráðuneytisins, dags. 17. febrúar 2006, en við úthlutun styrkja í tengslum við þá auglýsingu var ekki ráðstafað öllu því fé sem kveðið er á um í samningnum.

Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneyti í síðasta lagi 30. september nk. á sérstökum eyðublöðum sem þar fást og sem jafnframt er að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is. Á vefnum er einnig að finna fyrrnefndan samning menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur. Nánari upplýsingar veitir Sesselja Snævarr, deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneyti, sími 545 9500, netfang: [email protected].



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum