Hoppa yfir valmynd
15. september 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Doktorsnám við EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu

Ísland er aðili að EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu. EMBL (www.embl.org) býður upp á doktorsnám í sameindalíffræði og geta Íslendingar því sótt um námsdvöl við stofnunina.

Ísland er aðili að EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu. EMBL (www.embl.org) býður upp á doktorsnám í sameindalíffræði og geta Íslendingar því sótt um námsdvöl við stofnunina. Nemendur sem teknir eru inn í námið fá framfærslustyrk á meðan á námi stendur. Stofnunin er í fremstu röð á sínu sviði og samkeppni því mikil. Þeir sem lokið hafa eins til tveggja ára rannsóknatengdu framhaldsnámi (MS eða fjórða árs verkefni) í sameindalíffræði eða skyldum greinum, að loknu BS prófi, eru hvattir til að kynna sér námið og tilhögun þess og senda inn umsókn.

Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2006. Allar upplýsingar um námið er að finna á vefsíðunni http://www.embl.org/training/phdprogramme/index.html.  Einungis er tekið við umsóknum á netinu.  Frekari fyrirspurnir má senda til [email protected].

 

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum