Hoppa yfir valmynd
17. nóvember 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Framtíðarsýn í málefnum grunnskólans - Ný grunnskólalög

Málþing 25. nóvember 2006 kl. 9:30 – 13:00 á Hótel Nordica
Þingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir - þátttakendum að kostnaðarlausu

Málþing 25. nóvember 2006 kl. 9:30 – 13:00 á Hótel Nordica
Þingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir - þátttakendum að kostnaðarlausu

DAGSKRÁ

9:00 Skráning


Opnunaratriði

9:30 Tangóbandið ,,El enano valiente” (Hugrakki dvergurinn)
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra flytur ávarp
Guðrún Ebba Ólafsdóttir formaður endurskoðunarnefndar: Staðan í endurskoðuninni

Álitamálin

9:50 Sölvi Sveinsson og málþingsgestir: Skólaganga eða hlaup?
Flæðandi skil skólastiga? Skólaskylda eða fræðsluskylda?

10:30 Anna Kristín Sigurðardóttir og málþingsgestir:
Einstaklingsmiðað nám – tálsýn eða veruleiki?
Skóli án aðgreiningar – sérfræðiþjónusta/nærþjónusta

Kaffihlé

11:30 Ingvar Sigurgeirsson og málþingsgestir: Samræmd próf, kostir og gallar.
Gæðamat í skólastarfi

12:10 Jón Torfi Jónasson og málþingsgestir: Hver á að ráða?
Samstarf um skólastarf – ábyrgðarsvið einstakra hagsmunaaðila, foreldra, kennara og nemenda

Samantekt og lok

12:50 Stutt samantekt

13:00 Málþingsslit

Ráðstefnustjóri: Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytis
,,Umræðuvaki”: Brynhildur Ólafsdóttir fréttamaður

Menntamálaráðuneyti boðar til málþingsins í tengslum við heildarendurskoðun á grunnskólalögum. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku málþingsgesta í umræðum.
Skráning fer fram á www.congress.is



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum