Hoppa yfir valmynd
26. janúar 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til háskólanáms í Kína og Tékklandi skólaárið 2007-2008

Stjórnvöld Alþýðulýðveldisins Kína bjóða fram tvo styrki handa Íslendingum til háskólanáms í Kína námsárið 2007-2008.

Stjórnvöld Alþýðulýðveldisins Kína bjóða fram tvo styrki handa Íslendingum til háskólanáms í Kína námsárið 2007-2008. Umsækjendur um styrki til grunnnáms í háskóla skulu vera yngri en 25 ára og yngri en 35 ára ef þeir sækja um nám á meistarastigi.

Einnig er gert ráð fyrir að tékknesk stjórnvöld bjóði fram styrk til átta mánaða námsdvalar við háskóla í Tékklandi skólaárið 2007-2008. Styrkir til skemmri námsdvalar koma einnig til greina, þó ekki skemur en til þriggja mánaða.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneyti svo og á vef CSC: csc.edu.cn/en fyrir námsstyrki til Kína og fyrir styrki til Tékklands á vef tékkneska menntamálaráðuneytis: msmt.cz

Umsóknarfrestur er til 16. mars 2007. Umsóknir skal senda til menntamálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknum fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum