Hoppa yfir valmynd
4. maí 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir úr tónlistarsjóði árið 2007 - síðari úthlutun

Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 8. júní 2007.

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr tónlistarsjóði, samkvæmt lögum um tónlistarsjóð nr. 76/2004, til verkefna sem efnt verður til á seinni hluta ársins 2007. Næst verður auglýst eftir umsóknum í október 2007 vegna verkefna á fyrri hluta árs 2008.

Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Nánari upplýsingar um hlutverk sjóðsins, úthlutunarreglur, umsóknir og mat á þeim eru á vef menntamálaráðuneytis.

Öll tilskilin fylgigögn þurfa að berast með umsókn. Umsóknir og fylgigögn sem berast eftir að umsóknarfrestur er útrunninn verða ekki teknar til umfjöllunar. Að öðrum kosti eru þær ekki teknar til umfjöllunar. Minnt er á að styrkþegar úr fyrri úthlutunum þurfa að hafa skilað inn greinargerð vegna þeirra verkefna áður en nýjar umsóknir eru teknar til umfjöllunar.

Gert er ráð fyrir að umsóknir hljóti afgreiðslu tónlistarráðs innan sex vikna frá auglýstum skilafresti. Við mat á umsóknum er m.a. tekið tillit til listræns gildis og mikilvægis verkefnis fyrir almenna tónlistarstarfsemi og eflingu íslenskrar tónlistar, gildi og mikilvægis verkefnis fyrir kynningu og markaðssetningu íslenskrar tónlistar, starfsferils, faglegs og/eða listræns bakgrunns umsækjanda og fjárhagsgrundvallar verkefnisins.

Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneyti eða á vef þess: menntamalaraduneyti.is

Umsóknir skulu vera í þríriti og öll eintök undirrituð.

Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 8. júní 2007.


Umsóknir skal senda á póstfangið: Menntamálaráðuneyti, tónlistarsjóður, Sölvhólsgötu 4, 150, Reykjavík.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum