Hoppa yfir valmynd
25. maí 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýst eftir vefstjóra í menntamálaráðuneyti

Umsóknarfrestur er til 10. júní nk.

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf vefstjóra á upplýsinga- og þjónustusvið. Um er að ræða fullt starf. Verksviðið er vefstjórn innri og ytri vefja ráðuneytisins, þarfagreining, þróunarvinna, upplýsinga- og þekkingarmiðlun og aðgengismál.

Leitað er að háskólamenntuðum einstaklingi með reynslu og þekkingu á vefstjórn og upplýsingamiðlun. Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð eru nauðsynlegir kostir ásamt mjög góðri íslenskukunnáttu og hæfni í mannlegum samskiptum.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Kristín Jónsdóttir skrifstofustjóri upplýsinga- og þjónustusviðs.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 10. júní 2007.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum