Hoppa yfir valmynd
27. júlí 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýsing um ferðastyrki úr tónlistarsjóði

Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 20. ágúst 2007.Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 20. ágúst 2007.

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um ferðastyrki úr tónlistarsjóði, samkvæmt lögum um tónlistarsjóð nr. 76/2004. Eingöngu verða veittir ferðastyrkir vegna verkefna sem fara fram á síðustu fjórum mánuðum ársins 2007.

Lögð er áhersla á að umsóknir og fylgigögn með þeim berist menntamálaráðuneyti áður en umsóknarfrestur rennur út. Að öðrum kosti eru þær ekki teknar til umfjöllunar. Minnt er á að styrkþegar úr fyrri úthlutunum þurfa að hafa skilað inn greinargerð vegna þeirra verkefna áður en nýjar umsóknir eru teknar til umfjöllunar.

Gert er ráð fyrir að umsóknir hljóti afgreiðslu tónlistarráðs innan fimm vikna frá auglýstum skilafresti. Við mat á umsóknum er m.a. tekið tillit til listræns gildis og mikilvægis verkefnis fyrir kynningu og markaðssetningu íslenskrar tónlistar, faglegs og/eða listræns bakgrunns umsækjanda, vandaðrar áætlanagerðar og fjárhagsgrundvallar verkefnisins.

Næst verður auglýst eftir umsóknum í október 2007 vegna verkefna á fyrri hluta árs 2008. Nánari upplýsingar um hlutverk sjóðsins, úthlutunarreglur, umsóknir og mat á þeim eru á vef menntamálaráðuneytis.

Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum um ferðastyrki sem fást í menntamálaráðuneyti eða á vef þess: menntamalaraduneyti.is.

Umsóknir skulu vera í þríriti og öll eintök undirrituð.

Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 20. ágúst 2007.

Umsóknir skal senda á póstfangið: Menntamálaráðuneyti, tónlistarsjóður, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum