Hoppa yfir valmynd
3. ágúst 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Skrifstofustjóri á lögfræðisviði

Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2007.Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2007.

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra í ráðuneytinu. Skrifstofustjóri stýrir daglegri starfsemi á lögfræðisviði en hægt er að fela skrifstofustjóra umsjón með annarri skrifstofu eða sviði í ráðuneytinu.

Lögfræðisvið undirbýr ákvarðanir um lögfræðileg málefni og veitir lögfræðilega ráðgjöf innan ráðuneytisins. Lögfræðisvið hefur yfirumsjón með samningu lagafrumvarpa og reglugerða og undirbúningi stjórnsýsluúrskurða, auk þess sem það fer með samskipti við skrifstofu Alþingis. Lögfræðisvið hefur af hálfu ráðuneytisins umsjón með lögformlegri framkvæmd EES-samningsins og alþjóðlegra samninga sem ráðuneytið fer með aðild Íslands að. Sviðið fer með starfsmannamál stofnana sem heyra undir ráðuneytið eftir því sem við á, þ.m.t. skipun forstöðumanna.

Umsækjendur skulu hafa lokið embættisprófi í lögfræði eða hafa sambærilega menntun. Við mat á umsóknum verður litið til menntunar og starfsreynslu.

Í umsókn skal veita upplýsingar um menntun, starfsferil og reynslu.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Rakel Björnsdóttir skrifstofu yfirstjórnar í menntamálaráðuneyti. Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, eigi síðar en 20. ágúst 2007.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum