Hoppa yfir valmynd
31. ágúst 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til starfsemi atvinnuleikhópa 2008

Umsóknarfrestur er til 2. október 2007.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2008 til starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlögum.
Umsóknir gætu miðast við einstök verkefni eða samfellt starf til lengri tíma og verður afstaða tekin til skiptingar fjárins eftir eðli umsóknanna og eftir því sem fé á fjárlögum 2008 í þessu skyni kann að segja til um.
Umsóknir skulu berast til menntamálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 2. október 2007, á eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin er einnig að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.

Umsóknarfrestur er til 2. október 2007.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum