Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sérfræðingur á skrifstofu menntamála

Umsóknarfrestur er til 7. nóvember 2007.

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu menntamála. Um er að ræða fullt starf.

Leitað er að háskólamenntuðum einstaklingi með reynslu og þekkingu á starfsemi framhaldsskóla. Í starfinu felst einkum verkefnisstjórn við gerð skólasamninga við framhaldsskóla og tengd verkefni. Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli og þekking á nýtingu upplýsingatækni eru nauðsynlegir kostir ásamt ritfærni og hæfni í mannlegum samskiptum.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Ásgerður Kjartansdóttir deildarstjóri á upplýsinga- og þjónustusviði.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 7. nóvember 2007.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum