Hoppa yfir valmynd
26. október 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Innritun í framhaldsskóla á vorönn 2008

Innritun í dagskóla hefst 1. nóvember og lýkur 25. nóvember.

Innritun í dagskóla hefst 1. nóvember og lýkur 25. nóvember 2007. Einstakir skólar kunna að bjóða upp á lengra innritunartímabil og er upplýsingar um það að finna á heimasíðu viðkomandi skóla. Rafrænt umsóknareyðublað og nauðsynlegar upplýsingar um innritunina má nálgast á menntagatt.is. Þar eru einnig upplýsingar um nám í framhaldsskólum og námsframboð.

Umsækjendur um nám í dagskóla

Umsækjendur sem ekki hafa veflykil tiltækan geta sótt hann á menntagatt.is. Þegar umsækjendur hafa fengið veflykil opnast þeim aðgangur að innrituninni. Nemum sem koma erlendis frá er einnig bent á að setja sig í samband við þá skóla sem þeir hafa áhuga á að sækja um.

Umsóknir um nám í kvöldskóla og fjarnám

Innritun í kvöldskóla, fjarnám og annað en nám í dagskóla fer fram í þeim framhaldsskólum sem hafa það í boði. Skólarnir auglýsa umsóknarfrest sjálfir og leggja til umsóknareyðublöð. Umsækjendum er bent á að snúa sér til viðkomandi skóla. Upplýsingar um framhaldsskólana má finna á menntagatt.is.

Allar nánari upplýsingar um innritun á vorönn 2008 eru veittar í framhaldsskólunum.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum