Hoppa yfir valmynd
26. nóvember 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Skipun Æskulýðsráðs

Menntamálaráðuneyti leitar hér með eftir tilnefningum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka sbr. reglugerð nr. 1088/2007 um skipan fulltrúa í Æskulýðsráð, konu og karl til setu í Æskulýðsráði til tveggja ára.

Menntamálaráðuneyti leitar hér með eftir tilnefningum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka sbr. reglugerð nr. 1088/2007 um skipan fulltrúa í Æskulýðsráð, konu og karl til setu í Æskulýðsráði til tveggja ára. Í tilnefningunni skal koma fram vilji tilnefndra einstaklinga til að taka að sér setu í Æskulýðsráði. Með tilnefningu skal fylgja yfirlit yfir reynslu og þekkingu tilnefndra á starfi æskulýðsfélaga eða æskulýðssamtaka og yfirlýsing um að viðkomandi uppfylli ákvæði 10. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007.

Tilnefningar þurfa að berast menntamálaráðuneyti Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, bréflega í síðasta lagi fimmtudaginn 6. desember 2007.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum