Hoppa yfir valmynd
19. febrúar 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fornleifasjóður 2008

Umsóknarfrestur er til 14. mars 2008

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Jurgen Boos forstjóri Bókamessunnar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Jurgen Boos forstjóri Bókamessunnar

Fornleifasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum skv. 24. gr. þjóðminjalaga nr. 107/2001. Veittir verða styrkir til verkefna sem stuðla að rannsóknum og varðveislu á fornleifum og forngripum. Umsóknarfrestur er til 14. mars 2008. Á fjárlögum 2008 eru 25 milljónir króna til ráðstöfunar. Úthlutunarreglur sjóðsins nr. 73/2004 eru birtar í Stjórnartíðindum og á vef menntamálaráðuneytis, menntamalaraduneyti.is. Þar að auki mun stjórnin fylgja þeirri meginreglu að leitast við að dreifa styrkjum svo jafnt milli landshluta sem unnt er.

Umsóknir, í fjórum eintökum, sendist stjórn fornleifasjóðs, menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum