Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menningarsjóður Íslands og Finnlands

Umsóknarfrestur er til 14. mars 2008

Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands og Íslands. Í því skyni veitir sjóðurinn árlega ferðastyrki og annan fjárstuðning. Styrkir verða öðru fremur veittir einstaklingum en stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig til greina.
Styrkir til að sækja norrænar eða alþjóðlegar ráðstefnur koma að jafnaði ekki til greina.

Umsóknir um styrki úr sjóðnum fyrir tímabilið 1. júní 2008 - 31. maí 2009 skulu berast sjóðsstjórninni Hanaholmen - kulturcentrum för Sverige og Finland, FI-021000 Esbo, Finland, í síðasta lagi 14. mars 2008. Ákvörðun um úthlutun úr sjóðnum verður tekin fyrir lok maí nk.

Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku eða norsku. Sérstök umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Einnig er unnt að nálgast eyðublöðin á vef Hanaholmen.

Stjórn Menningarsjóðs Íslands og Finnlands, 26. febrúar 2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum