Hoppa yfir valmynd
11. apríl 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Kennarar - styrkir til námsheimsóknar til Japans

Japönsk stjórnvöld bjóða þrjá styrki til námsheimsókna til Japans til þess að kynnast menntakerfi, menningu og þjóðfélagsmálum.
Japanski fáninn

Japönsk stjórnvöld bjóða þrjá styrki til námsheimsókna til Japans til þess að kynnast menntakerfi, menningu og þjóðfélagsmálum. Styrkirnir eru ætlaðir framhaldsskólakennurum og kennurum í 8. - 10. bekk grunnskólans. Heimsóknin stendur í 14 daga og er gert ráð fyrir 214 þátttakendum frá 58 löndum. Lögð er áhersla á að allir, sem koma að heimsókninni, bæði gestir og heimamenn, séu vel mælandi á ensku. Námskeiðið, sem um ræðir, stendur frá 19. júní - 2. júlí næstkomandi.

Styrkurinn tekur til ferðakostnaðar og uppihalds í Japan.

Umsækjendur þurfa að uppfylla annað hvort eftirfarandi skilyrða:

A. Vera kennari á sviði félagsfræða, þ.e. sögu, landafræði, stjórnmálafræði, hagfræði eða alþjóðamála, hafa kennt í 5 ár og gera ráð fyrir að stunda kennslu næstu 10 árin.

B. Vera stjórnandi í skólakerfinu sem hefur forgöngu um námsskrárþróun eða samningu kennslubóka og kennaramenntun.

Umsóknareyðublöð um styrkina má fá í menntamálaráðuneytinu og á vef ráðuneytisins. Nánari upplýsingar gefur skrifstofa menntamála í síma 545 9500.

Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2008.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum