Hoppa yfir valmynd
12. apríl 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkur til háskólanáms á Ítalíu

Umsóknarfrestur er til 28. apríl 2008.

Ítölsk stjórnvöld munu væntanlega bjóða fram styrk/styrki handa Íslendingum til háskólanáms á Ítalíu námsárið 2008-2009.

Styrkurinn er einkum ætlaður til framhaldsnáms eða rannsókna við háskóla að loknu háskólaprófi eða til náms við listaháskóla (að loknu grunnnámi). Einnig kemur til greina að veita styrk til að sækja þriggja mánaða námskeið í ítölsku við Háskólann í Siena eða Perugia.

  • Umsækjendur skulu vera yngri en 38 ára.
  • Styrkfjárhæðin nemur um 620 evrum á mánuði.
  • Nánari upplýsingar og eyðublöð fást í menntamálaráðuneyti.
  • Umsóknarfrestur er til 28. apríl 2008.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum