Hoppa yfir valmynd
2. júní 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Bókasafns- og upplýsingafræðingur á upplýsinga- og þjónustusvið

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf bókasafns- og upplýsingafræðings á skjala- og bókasafni.

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf bókasafns- og upplýsingafræðings á skjala- og bókasafni. Um er að ræða fullt starf. Helstu verkefni eru umsjón með daglegum rekstri bókasafns ráðuneytisins, umsjón með útgáfuskrá og ljósmyndasafni ráðuneytisins, þátttaka í vefstjórn ytri og innri vefja og innsetning efnis og að veita starfsfólki ráðuneytisins upplýsingaþjónustu og aðstoða við heimilda- og gagnaöflun.

Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli eru nauðsynlegir kostir ásamt ritfærni og hæfni í mannlegum samskiptum. Kostur er ef viðkomandi hefur þekkingu á Lotus Notes og Fotostation hugbúnaði.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Ásgerður Kjartansdóttir deildarstjóri skjala- og bókasafns.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 22. júní 2008.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum