Hoppa yfir valmynd
11. júlí 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sérfræðingur á skrifstofu menntamála

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu menntamála í málefnum er einkum varðar sérkennslu og þjónustu við fatlaða.

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu menntamála í málefnum er einkum varðar sérkennslu og þjónustu við fatlaða. Um er að ræða fullt starf.

Leitað er að háskólamenntuðum einstaklingi með reynslu og þekkingu á íslenska menntakerfinu, einkum starfsemi framhaldsskóla, með áherslu á þjónustu við nemendur með sérþarfir og lausnir fyrir nemendur með námsörðugleika. Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli og þekking á nýtingu upplýsingatækni eru nauðsynlegir kostir ásamt ritfærni og hæfni í mannlegum samskiptum.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Ásgerður Kjartansdóttir deildarstjóri upplýsinga- og þjónustusviðs.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.

Umsóknarfrestur er til 28. júlí 2008.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum