Hoppa yfir valmynd
5. september 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Námsorlof framhaldsskólakennara og stjórnenda framhaldsskóla

Umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2009-2010 þurfa að berast menntamálaráðuneytinu eigi síðar en 1. október næstkomandi.

Umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2009-2010 þurfa að berast menntamálaráðuneyti eigi síðar en 1. október næstkomandi. Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla.

Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um námsorlof skulu vera á rafrænu formi.

Sækja þarf um aðgang að umsóknavef ráðuneytisins. Þar eru tvö eyðublöð; fyrir námsorlof kennara og stjórnendur framhaldsskóla og fyrir umsókn skólameistara um námsorlof kennara í nafni skóla.


Menntamálaráðuneyti, 5. september 2008.
menntamalaraduneyti.is



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum