Hoppa yfir valmynd
16. september 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til kennslu grunnnáms í listdansi

Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki til dansskóla er kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla.

Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki til dansskóla er kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla. Styrkjunum er ætlað að efla framboð grunnnáms í listdansi. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að skólinn hafi hlotið viðurkenningu ráðuneytisins á starfseminni samkvæmt viðmiðum sem ráðuneytið hefur sett. Umsókn um rekstrarstyrk þurfa að fylgja upplýsingar um nemendafjölda á hverju stigi grunnnámsins, upplýsingar um kennslustundafjölda og skólagjöld. Nánari leiðbeiningar um frágang umsókna eru á umsóknareyðublaði sem er á vef ráðuneytisins.

Umsóknarfrestur er til 15. október næstkomandi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum