Hoppa yfir valmynd
17. október 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Doktorsnám við EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu

EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu auglýsir námsdvöl fyrir doktorsnema. Nemendur sem teknir eru inn í námið fá framfærslustyrk á meðan á námi stendur.
EMBL
embl_logo

Ísland er aðili að EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu. EMBL (www.embl.org) býður upp á doktorsnám í sameindalíffræði og skyldum greinum og geta Íslendingar sótt um námsdvöl við stofnunina. Nemendur sem teknir eru inn í námið fá framfærslustyrk á meðan á námi stendur og er öll aðstaða til fyrirmyndar, m.a. góð aðstaða fyrir fjölskyldufólk og leikskóli á staðnum. Stofnunin er í fremstu röð á sínu sviði. Þeir sem lokið hafa eins til tveggja ára rannsóknatengdu framhaldsnámi (MS eða fjórða árs verkefni) í sameindalíffræði eða skyldum greinum, að loknu BS prófi, eru hvattir til að kynna sér tilhögun doktorsnáms við EMBL og senda inn umsókn.

Umsóknarfrestur er 16. desember 2008. Allar upplýsingar um námið er að finna á vefsíðunni http://www.embl.org/training/phdprogramme/index.html. Einungis er tekið við umsóknum á netinu. Frekari fyrirspurnir má senda til [email protected]. Einnig má hafa samband við Katrínu Valgeirsdóttur ([email protected]) eða Eirík Steingrímsson ([email protected]).



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum