Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir vegna stuðnings við dönskukennslu

Samkvæmt samningi milli menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur um stuðning við dönskukennslu á Íslandi
Danski fáninn
Danski fáninn

Samkvæmt samningi milli menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur um stuðning við dönskukennslu á Íslandi leggur menntamálaráðuneyti Íslands árlega fram 6.0 milljónir króna til verkefna, sbr. 3. gr. samningsins. Er hér auglýst eftir umsóknum um styrki til verkefna í eftirtöldum málaflokkum:

  • Endurmenntunarnámskeið fyrir dönskukennara í grunn- og framhaldsskólum.
  • Námsefnisgerð í dönsku fyrir grunn- og framhaldsskóla. Námsefni sem felur í sér nýbreytni í dönskukennslu hefur forgang við úthlutun.
  • Rannsóknir og þróunarstarf á sviði náms og kennslu í dönsku sem erlends tungumáls.
  • Vitundarvakning um mikilvægi dönskukunnáttu fyrir Íslendinga.

Samstarfsnefnd sem skipuð er fulltrúum beggja landanna metur umsóknir og gerir tillögur um styrkveitingar.

Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneyti í síðasta lagi föstudaginn 3. apríl nk. á sérstökum eyðublöðum sem þar fást og má jafnframt nálgast á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is. Þar er einnig að finna samning menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur. Nánari upplýsingar veitir Sesselja Snævarr, deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneyti, sími 545 9500, netfang: [email protected].



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum