Hoppa yfir valmynd
19. mars 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Æskulýðssjóður 2. úthlutun 2009

Æskulýðssjóður starfar samkvæmt æskulýðslögum nr. 70/2007 og reglum um Æskulýðssjóð nr. 60/2008.

Æskulýðssjóður starfar samkvæmt æskulýðslögum nr. 70/2007 og reglum um Æskulýðssjóð nr. 60/2008.

Næsti umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er 1. apríl 2009.

Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:

  • Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra.
  • Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða.
  • Nýjungar og þróunarverkefni.
  • Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.

Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta viðburði í félagsstarfi, svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði, né ferðir hópa.

Menntamálaráðherra úthlutar styrkjum úr Æskulýðssjóði að fengnum tillögum stjórnar Æskulýðssjóðs.

Umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er fjórum sinnum á ári, 1. febrúar, 1. apríl, 1. september og 1. nóvember og er umsóknarfrestur auglýstur hverju sinni.


Í umsókn til Æskulýðssjóðs skulu koma fram upplýsingar um:

  • nafn æskulýðsfélags eða æskulýðssamtaka
  • nafn og heimilisfang umsækjanda
  • heiti, lýsing og markmið verkefnis, ásamt kostnaðar- og tímaáætlun
  • áætlaðan fjölda þátttakenda
  • samstarfsaðila eftir því sem við á
  • kennitölu og númer bankareiknings er styrkurinn á að leggjast inn á ef viðkomandi hefur fengið úthlutað styrk.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins á vefslóðinni http://umsoknir.stjr.is.

Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjanda (ekki kennitölu æskulýðsfélags eða æskulýðssamtaka) og verður lykilorð sent viðkomandi á netfang sem hann gefur upp við nýskráningu. Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar.

Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja menntamálaráðuneytið undir flipanum Umsóknir. Þar er umsóknareyðublað fyrir Æskulýðssjóð. Svæði merkt rauðri stjörnu verður að fylla út. Umsækjendur geta fylgst með afgreiðslu umsókna sinna með því skrá sig inn á umsóknavefinn.

Nánari upplýsingar um Æskulýðssjóð veitir Valgerður Þórunn Bjarnadóttir í síma 545 9500 eða í tölvupósti á [email protected]

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum