Hoppa yfir valmynd
1. apríl 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til háskólanáms í Rússlandi og á Taiwan

Menntamálaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til háskólanáms í Rússlandi og Taiwan.

Styrkir til háskólanáms í Rússlandi

Stjórnvöld í Rússlandi bjóða fram einn styrk handa Íslendingi til háskólanáms skólaárið 2009-2010 og þrjá styrki til skemmri námsdvalar eða rannsókna í Rússlandi á sama námsári.

Umsækjendur um styrki til háskólanáms í Rússlandi skulu að öðru jöfnu vera yngri en 25 ára og umsækjendur um styrki til skemmri námsdvalar eða rannsókna skulu vera yngri en 35 ára og hafa lokið MA- eða MS-prófi. Fyrrnefndu styrkirnir nema 1100 rúblum á mánuði (u.þ.b. 4.000 ísl. kr.) en þeir síðarnefndu 1.500 rúblum á mánuði (u.þ.b. 5.400 ísl. kr.). Að auki verður styrkþegum séð fyrir herbergi á stúdentagarði sem þeir greiða fyrir sömu leigu og rússneskir námsmenn. Styrkþegar greiða sjálfir allan ferðakostnað.

Umsóknarfrestur um styrkina til háskólanáms í Rússlandi er til 15. apríl nk.

Styrkir til háskólanáms á Taiwan

Ráðuneyti menntamála áTaiwan hefur tilkynnt að það bjóði fram styrk handa Íslendingi til BA-, MA- eða doktorsnáms á Taiwan. Styrkurinn er til allt að 5 ára, þar af eitt ár til náms í kínversku. Styrktímabilið er frá 1. september 2009. Einnig er boðinn fram einn styrkur til náms í kínversku við háskóla á Taiwan námsárið 2009-2010, þ.e. frá 1. september 2009 til 31. ágúst 2010.

Athygli er vakin á því að umsækjandi þarf að vera kominn með staðfesta skólavist í háskóla á Taiwan.

Frekari upplýsingar um nám á Taiwan er hægt að nálgast á vefsíðunni: www.studyintaiwan.org

Umsóknarfrestur um styrkina til háskólanáms á Taiwan er til 1. júní nk.

Umsóknum skal skila til menntamálaráðuneytisins á sérstökum umsóknareyðublöðum, ásamt tilskildum fylgigögnum.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð eru fáanleg í menntamálaráðuneyti.

Menntamálaráðuneyti, 30. mars 2009.

menntamalaraduneyti.is



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum