Hoppa yfir valmynd
5. maí 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til háskólanáms í Rússlandi

Stjórnvöld í Rússlandi bjóða fram 4 styrki handa Íslendingum til háskólanáms skólaárið 2009-2010 og þrjá styrki til skemmri námsdvalar eða rannsókna í Rússlandi á sama námsári.
Rússland
russland

Styrkir til háskólanáms í Rússlandi. Stjórnvöld í Rússlandi bjóða fram 4 styrki handa Íslendingum til háskólanáms skólaárið 2009-2010 og þrjá styrki til skemmri námsdvalar eða rannsókna í Rússlandi á sama námsári.

  • Umsækjendur um styrki til háskólanáms í Rússlandi skulu að öðru jöfnu vera yngri en 25 ára og umsækjendur um styrki til skemmri námsdvalar eða rannsókna skulu vera yngri en 35 ára og hafa lokið MA- eða MS-prófi.
  • Fyrrnefndu styrkirnir nema 1100 rúblum á mánuði (u.þ.b. 4.000 ísl. kr.) en þeir síðarnefndu 1.500 rúblum á mánuði (u.þ.b. 5.400 ísl. kr.). Að auki verður styrkþegum séð fyrir herbergi á stúdentagarði sem þeir greiða fyrir sömu leigu og rússneskir námsmenn.
  • Styrkþegar greiða sjálfir allan ferðakostnað.

Umsóknarfrestur um styrkina er hér með framlengdur til 15. maí nk.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum