Hoppa yfir valmynd
14. maí 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkur til háskólanáms á Ítalíu

Ítölsk stjórnvöld bjóða íslenskum nemendum að sækja um styrk til námsdvalar á Ítalíu næsta skólaár, 2009-2010.
Ítalski fáninn
Italski_faninn

Ítölsk stjórnvöld bjóða íslenskum nemendum að sækja um styrk til námsdvalar á Ítalíu næsta skólaár, 2009-2010.

Styrkirnir eru ætlaðir til náms í 3, 6, 9 eða 12 mánuði við ítalskan háskóla eða sambærilega stofnun. Umsækjendur geta verið í grunn- eða framhaldsnámi, einnig geta ítölskukennarar sem vilja sækja styttri tungumála- eða menningarnámskeið sótt um styrk. Góð þekking á ítölsku er skilyrði. Umsækjendur þurfa að vera 35 ára eða yngri, fyrir utan kennara. Sótt er um á netinu á sérstöku umsóknareyðublaði (einnig til á ensku). http://borseonline.esteri.it/borseonline/it/index.asp

Prenta þarf umsóknina út og senda ásamt tveimur meðmælabréfum til ítalska sendiráðsins í Ósló fyrir 10. júní 2009.

  • Italian Embassy
    Inkognitogaten 7
    244 Oslo
    Norway

Nánari upplýsingar um styrkina er að finna á vef ítalska utanríkisráðuneytisins: http://www.esteri.it/MAE/IT/Ministero/Servizi/Stranieri/Opportunita/
Simona Storchi, lektor í ítölsku við deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda í Háskóla Íslands veitir nánari upplýsingar og aðstoð, [email protected], s: 525 4559.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum