Hoppa yfir valmynd
16. júní 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Laust embætti rektors Landbúnaðarháskóla Íslands

Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. laga um búnaðarfræðslu, nr. 57/1999, auglýsir menntamálaráðherra hér með laust til umsóknar embætti rektors Landbúnaðarháskóla Íslands.

Embætti rektors Landbúnaðarháskóla Íslands er laust til umsóknar.

Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. laga um búnaðarfræðslu, nr. 57/1999, auglýsir menntamálaráðherra hér með laust til umsóknar embætti rektors Landbúnaðarháskóla Íslands.

Rektor er yfirmaður stjórnsýslu Landbúnaðarháskólans og ber ábyrgð á rekstri hans. Hann ber ábyrgð á gerð starfs- og rekstraráætlana og að þær séu samþykktar af háskólaráði. Rektor er jafnframt æðsti fulltrúi Landbúnaðarháskólans gagnvart mönnum og stofnunum innan skólans og utan hans. Hann stýrir starfsemi háskólans og hefur frumkvæði að því að háskólaráð marki sér heildarstefnu í málefnum skólans. Rektor fer með ráðningarvald yfir öllum starfsmönnum skólans og setur þeim erindisbréf eða starfslýsingar. Um laun rektors fer eftir ákvörðun kjaranefndar.

Menntamálaráðherra skipar rektor í samræmi við 1 mgr. 25. gr. laga um búnaðarfræðslu, að fenginni umsögn háskólaráðs. Skipunartímabil rektors er frá 1. ágúst 2009.

Embættisgengir í embætti rektors Landbúnaðarháskóla Íslands eru þeir einir sem sem lokið hafa æðri prófgráðu við háskóla og hafa stjórnunarreynslu að baki.

Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík fyrir 1. júlí 2009.






Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum