Hoppa yfir valmynd
29. október 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Doktorsnám við EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu

Til umsóknar er doktorsnám við EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu.
EMBL
embl_logo

Til umsóknar er doktorsnám við EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu. EMBL (www.embl.org) býður upp á doktorsnám í sameindalíffræði og skyldum greinum og geta Íslendingar sótt um námsdvöl við stofnunina. Nemendur sem teknir eru inn í námið fá framfærslustyrk á meðan á námi stendur og er öll aðstaða til fyrirmyndar, m.a. góð aðstaða fyrir fjölskyldufólk og leikskóli á staðnum. Stofnunin er í fremstu röð á sínu sviði. Þeir sem lokið hafa eins til tveggja ára rannsóknatengdu framhaldsnámi (MS eða fjórða árs verkefni) í sameindalíffræði eða skyldum greinum, að loknu BS prófi, eru hvattir til að kynna sér tilhögun doktorsnáms við EMBL og senda inn umsókn.

Umsóknarfrestur er til 15. desember 2009 en skrá þarf umsóknina fyrir 1. desember. Allar upplýsingar um námið er að finna á vefsíðunni http://www.embl.de/training/eipp/index.html. Einungis er tekið við umsóknum á netinu.  Frekari fyrirspurnir má senda til [email protected].  Einnig má hafa samband við Katrínu Valgeirsdóttur ([email protected]) eða Eirík Steingrímsson ([email protected]).



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum